Settu keramik snertiflöt tækisins á stunguna eða bitið (fjarlægðu oddinn fyrst ef nauðsyn krefur) og þrýstu honum varlega á húðina.
Veldu einn af tveimur meðferðartímum með því að ýta á samsvarandi hnappa.
3 sekúndur (vinstri hnappur) til upphafsmeðferðar, fyrir fólk með viðkvæma húð og börn.
5 sekúndur (hægri hnappur) fyrir venjulega notkun.
2 stk AA batterí fylgja tækinu. Ef tækið er geymt lengi, ónotað, er mælt með því að fjarlægja batteríin.
Með sömu batteríunum er hægt að nota bite away allt að 300 sinnum!
Börn eldri en 12 ára geta lært að nota bite away sjálf. Börn yngri en 12 ára ættu alltaf að nota bite away með aðstoð fullorðinna. Mælt er með styttri stillingunni (3 sek) þar sem að tilfinningin sem finnst við notkunina þarf að venjast. Við notkun hjá börnum skal hafa í huga að húð barna er næmari fyrir sársauka en húð fullorðinna. Áður en börn eru meðhöndluð skal láta þau vita að bite away myndi hita sem geti valdið óþægindum í stutta stund.
HERPOtherm er aðeins ætlað til eigin meðhöndlunar hjá fullorðnum og börnum 12 ára og eldri. Börn yngri en 12 ára ættu aðeins að nota það með aðstoð fullorðinna.
Barnshafandi konur og ofnæmis einstaklingar geta notað bite away og HERPOtherm. Hjá bite away er mælt er með því að nota styttri stillinguna (3 sek) í fyrstu skiptin. Þegar maður þekkir notkunina vel er hægt að prófa lengri styllinguna (5 sek).